Flóð skoðanakannana

Það verður ekki sagt annað en skoðanakannanir séu að tröllríða öllu í fjölmiðlum þessa síðustu daga fyrir kosningar, þó fylgið sé eitthvað misjafnt í þeim fyrir flokkana.

Mér finnst þessi kosningabarátta hafa verið eitthvað dauf, kannski hef ég ekki verið að fylgjast mikið með, þó reynt að sjá einhverja kosningaþætti bæði á RÚV og Stöð 2.


mbl.is Ríkisstjórnin fallin samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar 2007

Gaman að skoða þetta á http://xhvad.bifrost.is/ Ég tók þetta að gamni og skoraði hæst 75% hjá einum flokki sem ég ætla að halda fyrir mig hver er Cool Svo voru 4 flokkar svona í kringum 40% allir og einn sem ég á ekki samleið með þar sem skoraði rúm 6%.

Kom svo sem ekkert á óvart í þessu, staðfesti þær pólitísku skoðanir sem ég hef haft hingað til Smile

 

 


Eurovision ...

Ég horfði á síðasta þáttinn með norrænu spekingunum að dæma Eurovision lögin í gær og þvílík hörmung megnið af þessum lögum. Ég hreinlega dottaði í sófanum yfir einhverjum laganna svo leiðinleg voru þau! En það segir nú kannski líka eitthvað til um þreytu og slappleika hjá mér ...


Skoðanakönnun í Norðausturkjördæmi

Gaman að fylgjast með skoðanakönnunum í mínu "gamla" kjördæmi, Norðausturkjördæmi. Nokkuð ljóst að ef úrslit kosninga verða á svipaðan veg og þær kannanir sem hafa verið gerðar, þá eru Sjálfstæðisflokkurinn og VG að bæta verulega við sig frá síðustu kosningum.

Það sem skýrir þetta góða gengi hjá Sjálfstæðisflokknum er sterkur listi sem var fenginn í lýðræðislegu prófkjöri, með góðri dreifingu í efstu sætum á milli Norður- og Austurlands auk þess sem endurnýjun er mikil.

Framsókn er hins vegar að tapa miklu fylgi og helming þingmanna sem með núna og hlýtur það að vera umhugsunarefni fyrir Utanríkisráðherrann Valgerði Sverrisdóttir.

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur og VG bæta við sig í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugleiki...

Mjög mikilvægt að ná stöðugleika í þjóðarbúskapnum svo við förum að sjá stýrivexti Seðlabankans lækka á næstunni. Þar sem það hefur góð áhrif fyrir öll heimili í landinu!
mbl.is Brýnasta hagstjórnarverkefnið að ná stöðugleika í þjóðarbúskapnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjórfroða

Ég segi nú ekki meira en allt er hægt að rannsaka, sennilega verið mikið stuð hjá þeim félögum við að rannsaka froðuna á bjórnum Smile  Ekki viss um að sé mjög gott að vera búinn að fá sér marga öllara þegar hreyfingar loftbólanna í bjórnum eru reiknaðar út með þessari merkilegu jöfnu þeirra félaga LoL
mbl.is Bjórgátan mikla leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar og vona svo sannarlega að sumarið verði gott og skemmtilegt Smile
mbl.is Sumar og vetur frusu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyninúmer!

Það var skrýtið símtal sem ég fékk í morgun í gsm símann minn úr leyninúmeri, en konan hinu megin á línunni kynnti sig frá Félagsvísindastofnun HÍ og sagðist vera gera skoðanakönnun í mínu kjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Ég benti henni á að hefði ekki áhuga á að taka þátt þar sem mögulega gæti verið um gabb að ræða!


Skrýtið veður

Ekki hægt að segja annað en veðrið hér í höfuðborginni sé búið að vera skrýtið í dag, bæði verið él/snjókoma fyrripartinn og svo sól seinnipartinn. Það er sennilega ekki alveg öruggt að vorið sé komið, gæti átt eftir að snjóa eitthvað. En ég er ekki einn af þessum bíleigendum sem þurfti að skafa í morgun, alltaf ljúft að geta brunað beint út úr upphitaða bílskýlinu á morgnana Cool
mbl.is Allra veðra von
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegur ágúst 2007!

Jæja þá er ég búinn með hið einfalda verk að klára skattaskýrslu mína fyrir árið 2006, samt eitthvað sem búinn að vera fresta eða ekki haft tíma né nennu til fyrr en í kvöld, ég sjálfur viðskiptafræðingurinn! Smile 

Ég er allavega sáttur við þær niðurstöður sem komu út úr bráðabirgðaútreikningi og þess vegna verður ágúst mánuður gleðilegur í formi smá aukabónus frá skattinum. Að hluta til að þakka bæjarfélaginu mínu sem með lægra útsvar heldur en það landsmeðaltal sem dregið af launum við hver mánaðarmót Happy


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband