Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Lækkun VSK 1. mars

Verður gaman að sjá hversu fulla vasa fjár við neytendur verðum með frá morgundeginum þegar VSK lækkar og vörugjöld verða felld niður. Mun samt ekki reyna mikið á þetta hjá mér fyrr en held í innkaupaleiðangur vikunnar sem verður á föstudaginn. Ég ætti allavega að finna einhverja nokkra hundraðkalla m.v. hvað innkaup vikunnar kosta.
mbl.is Matvöruverslanir í óða önn að undirbúa sig fyrir lækkun virðisaukaskatts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisóvænir Vinstri grænir

Alveg stórmerkilegt að ekki fleiri þátttakendur á landsfundi Vinstri grænna skuli hafa farið gangandi, á hjóli eða með strætó á fundinn LoL Ekki alveg samkvæmir sjálfum sér og stefnskrá sinni, hræsni eða hvað?

 


mbl.is Einn á hjóli hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkaflakk

Hlýtur að vera frekar skrýtið fyrir þá sem skipta um flokk á kjörtímabilinu, þegar þurfa svo að fá varaþingmann inn fyrir sig eins og í þessu tilfellii hjá Gunnari Erni sem byrjaði frjálslyndur en endaði sjálfstæður. Svo þegar hann fer í fæðingarorlof kemur inn óháð kona Woundering

Þessi umræða hefur komið upp áður þegar alþingismenn fara í fýlu og skipta um flokk, eins og hefur nú verið þó nokkuð um upp á síðkastið, hvort þeir eigi ekki að segja sig frá þingmennsku og inn komi næsti maður flokksins í kjördæminu. Finnst þetta allavega mjög undarlegt fyrirkomulag eins og þetta dæmi sýnir líka mjög vel.


mbl.is Óháður inn fyrir sjálfstæðismann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í lagi

Það er eins gott að maður var ekki fyrir þessum í umferðinni í gærkvöldi. Nokkuð ljóst að að hann hefur ekkert við bílpróf að gera og fær vonandi sviptingu sem lengst og háa sekt Shocking
mbl.is Ökumaður í annarlegu ástandi skapaði stórhættu á götum Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týndur póstur

Pósturinn bæði í þessu hverfum í Mosfellsbæ og Grafarvogi hefur sennilega ekki nennt að bera út allan póstinn, en ég velti fyrir mér hvar fannst pósturinn eiginlega? þar sem þeir hjá Íslandspósti bera því við að starfsmaður hafi brugðist starfsskyldum sínum.


mbl.is Gamall póstur borinn út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensínverð

Jæja skyldu þessar fréttir utan úr hinum stóra heimi þýða að bensínverð lækki næstu daga hér á landi eða ætli "birgðastaðan" sé kannski svo mikil að þetta eigi ekki við og þurfi að bíða og sjá hvort það muni hækka aftur? FootinMouth
mbl.is Olíuverð lækkaði um rúma 2 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjöt eða vatn?

Athyglisverð umfjöllun í fréttaskýringaþættinum Kompás, sem var sýndur á Stöð 2 í gærkvöldi, um vatn  og ýmis aukaefni sem Íslenskir kjöt- og fiskframleiðendur eru að setja í vöru sína.

Framleiðendur eru greinilega mjög margir að stunda þessi "vörusvik" til þess fyrst og fremst að græða á okkur neytendum. Vonandi verður þessi umfjöllun til að framleiðendur skammist sín og allavega merki vöruna betur með hvert hlutfall t.d. vatns í kjötinu er og innihaldslýsing sé greinargóð og segi til nákvæmlega um öll aukaefni. Allra best væri þó ef öllu svona yrði hætt tafarlaust þar sem við neytendur hljótum að gera kröfu um það að okkur sé boðin hrein og góð vara til neyslu eða hvað? En þetta var líka í umfjölluninni sett í samhengi við að ríkar kröfur séu uppi frá neytendum um lægra vöruverð. Ég allavega vil ekki að lækkun matvælaverðs feli það í sér að ég sé að fá vöru með lélegri gæði og fullt af alls konar aukaefnum og ógeði sem ekki er vitað hvaða áhrif hafi á líkamann fyrir smá lægra verð, sem svo kannski í raun er ekkert lægra þegar tekið er tillit til þess hversu mikið hráefnið rýrnar vegna vatnsinnihalds.

Svo í lokin vil ég koma því á framfæri varðandi Kompás að finnst skrýtið að þessir þættir sem áður voru alltaf í opinni dagskrá meðan hét NFS eru núna ruglaðir. Ég sem hagsýnn neytandi tími ekki að vera borga fyrir Stöð 2 en hélt að þeir hefðu yfirleitt verið með allt svona fréttatengt efni í opinni dagskrá en kannski eitthvað ný stefna hjá þeim? Svo til að nöldra meira þá koma þættirnir ekki nægilega fljótt inn á visir.is, sýnist yfirleitt ekki vera hægt að horfa á þá fyrr en daginn eftir Shocking

 


Ekki er öll vitleysan eins ...

Skv. þessu frumvarpi á hinu háa Alþingi mun vísitala neysluverðs frá og með næsta ári verða reiknuð út frá verðlagi í vikutíma um miðjan mánuð en ekki út frá verðlagi fyrstu 2 daga mánaðar eins og nú er. 

Ég vil koma þeirri skoðun minni á framfæri að gáfulegra væri að Alþingismenn okkar afnemi verðtryggingu af lánum! Þar sem þessi breyting skiptir væntanlega ekki neinu máli fyrir þá sem skulda verðtryggð lán. En sennilega er það því miður bara óskhyggja og fjarlægur draumur að verðtrygging verði afnumin, þar sem bankarnir þurfa víst bæði að vera með belti og axlabönd Angry

 


mbl.is Lagt til að vísitala neysluverðs miðist við verð í miðjum mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsóknir ...

Það er greinilega mjög áhrifarík leið til að fá fleiri heimsóknir á síðuna og "meiri athygli" að blogga um fréttir á mbl.is. Þetta segir mér fjöldi heimsókna í dag sem er kominn í 430!

Hvað næst?

Alveg merkilegt að þetta Byrgismál virðist engan endi ætla að taka! Mjög athyglisvert þetta með að Pétur skrifaði bréf til Landlæknisembættisins árið 2002 en ekki var brugðist við því. Það hefur allavega enginn viljað viðurkenna neina ábyrgð vegna þessa máls og hver bent á annan eins og að þetta heyrði ekki undir Landlæknisembættið, gátu þeir ekki allavega komið málinu áfram til þeirra sem hefðu getað gert eitthvað og það heyrði undir? Kannski til of mikils ætlast.

Þetta mál er svo sannarlega eins og í týpískri sápuóperu og ég spyr bara hvað kemur næst fram í dagsljósið?


mbl.is Segir barnsfæðingar af völdum kynferðismisnotkunar í Byrginu orðnar tíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband