Hvað næst?

Alveg merkilegt að þetta Byrgismál virðist engan endi ætla að taka! Mjög athyglisvert þetta með að Pétur skrifaði bréf til Landlæknisembættisins árið 2002 en ekki var brugðist við því. Það hefur allavega enginn viljað viðurkenna neina ábyrgð vegna þessa máls og hver bent á annan eins og að þetta heyrði ekki undir Landlæknisembættið, gátu þeir ekki allavega komið málinu áfram til þeirra sem hefðu getað gert eitthvað og það heyrði undir? Kannski til of mikils ætlast.

Þetta mál er svo sannarlega eins og í týpískri sápuóperu og ég spyr bara hvað kemur næst fram í dagsljósið?


mbl.is Segir barnsfæðingar af völdum kynferðismisnotkunar í Byrginu orðnar tíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12 ár síðan ... 7. febrúar 1995

Í dag eru liðin akkúrat 12 ár síðan ég eignaðist fyrsta bílinn minn en það gerðist nokkrum mánuðum eftir að ég fékk bílprófið. Bíllinn er af gerðinni Toyota Corolla Touring '92 módel og er fjórhjóladrifinn eðalvagn sem reyndist mér einstaklega vel í þau tæp 11 ár sem ég átti hann. En bílinn seldi ég í desember 2005 til foreldra minna sem eiga hann ennþá og nota mikið m.a. vegna vinnu.

Ég var reyndar ekki fyrsti eigandi þessa bíls en svo skemmtilega vill til að sú sem átti bílinn á undan  mér nloggar á síðunni http://logos.blog.is

Hér fyrir neðan er svo nýleg mynd af kagganum sem er tekin í sveitinni heima Smile

P2060013


Kjalvegur ...

Áhugaverð þessi frétt um nýjan Kjalveg sem myndi stytta vegalengdina frá Reykjavík til Akureyrar um 47 km. Að vísu þar sem um einkaframkvæmd er að ræða, þá væri veggjald sem þeir segja gæti orðið um 2.000 kr. á ferð. Tel samt að það sé kannski ekki svo dýrt því hvort eð er kostar í dag 1.000 kr. í Hvalfjarðargöngin fyrir utan svo sparnað í bensínkostnaði vegna styttingu vegalengdar. Líst vel á þessa framkvæmd og verður áhugavert að fylgjast með hvort eitthvað verður meira úr þessu Smile


mbl.is Vilja hefja undirbúning nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Febrúarmánuður ...

Jæja þá er febrúarmánuður framundan, fyrsti mánuður ársins að renna sitt skeið og búinn að líða á ógnarhraða! Þessi mánaðarmót fela í sér bæði upphaf og endi fyrir mig þar sem ég kvaddi í dag vinnustað minn til næstum sl. 4 ára. Í fyrramálið mæti ég svo í nýja vinnu og óhætt að segja að sambland af spenningi og smá hnút í maganum lýsi stemmingu kvöldsins vel Happy

Kominn tími til að blogga ...

Jæja held að það sé kominn tími til að setja sig í stellingar og skrifa eitthvað á þetta blogg. Svona í framhaldi af ábendingu frá blog.is um að ég væri alls ekki að standa mig! Smile

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband